lommi

ForsíðaBloggEru ekki öll ljóð bara kveikjur sem gervigreindin hefur ekki meðtekið?
23. október 2024

Eru ekki öll ljóð bara kveikjur sem gervigreindin hefur ekki meðtekið?

let dream = true;
let surrender = false;

if (dream) {
    surrender = true;
}

Þetta er hálf tilgangslaus kóði. Steinn Steinarr var engin Ada Lovelace.

Það þarf einhver að mata vélarnar með bulli. Rangar og skrítnar tengingar eru skapandi, og sköpun getur þýtt nýjar hugmyndir, og nýjar hugmyndir eru peningar. Það verður ekkert ljóðskáld atvinnulaust næstu árin, sem hefur í för með sér mikinn skort á sjálfsútgefnum ljóðabókum. Eftir áratug eða tvo verður fólk tilbúið að greiða himinháar upphæðir fyrir ljóðabækur og þá tekur við stutt tímabil mikillar grósku.